Skemmti- og skoðunarferð maka/gesta
Þorgeirskirkja
Lagt er af stað frá Menningarhúsinu Hofi kl. 11.30 (ath! breyttur brottfaratími)
Fararstjóri: Vilhjálmur “vandræðaskáld”.
Fyrsta stopp verður hjá Þorgeirskirkju. Þorgeirskirkja við Ljósavatni var reist í minningu kristnitökunnar á Alþingi árið 1000 og til heiðurs Þorgeiri Ljósvetningagoða sem þá var lögsögumaður og olli mestu um það að hin nýja trú var lögtekin með friðsamlegum hætti.
Húsavík
Eftir létta rútuhressingu í fljótandi formi verður ekið til Húsavíkur, nýja heimabæjar Íslendinga og mekka Eurovision á Íslandi.
Við skoðum nýtt Eurovision safn sem hefur að geyma skemmtilega muni frá hinum ýmsu Eurovision keppnum.
Frá safninu verður haldið á Jaja ding dong þar sem við bætum okkur á brasilísku Feijoada ásamt heimagerðu kryddbrauði og heimagerðu límonaði. Einnig verður hægt að fá súpu og brauð. Svo er kaffi og sæt kaka í eftirrétt.
Goðafoss
Á bakaleiðinni stoppum við á Fosshóli og lítum á einn fallegasta foss landsins, Goðafoss. Tekið verður á móti okkur með léttri hressingu.
Að þessu loknu verður ekið tilbaka til Akureyrar og ferðinni lýkur við Hof.
Verð á mann er 12.500 kr.
Skráning fer fram í skráningarforminu á forsíðu.